Frumsýningu fimmtu myndarinnar um Indiana Jones hefur verið frestað um eitt ár. Upphaflega átti að frumsýna myndina í júlí 2019 en áætlanir gera nú ráð fyrir því að hún verði frumsýnd 10. júlí 2020.
Þremur dögum síðar, 13. júlí 2020, mun aðalleikari myndarinnar, Harrison Ford, fagna 78 ára afmæli.
Steven Spielberg mun leikstýra myndinni en það munu því líða tólf ár á milli kvikmynda um fornleifafræðinginn knáa en síðasta mynd, Kingdom of the Crystal Skull, var frumsýnd árið 2008. Leikarinn og leikstjórinn unnu fyrst saman við gerð fyrstu kvikmyndinni um Indiana Jones árið 1981
Disney hefur einnig staðfest að þriðja myndin í núverandi Star Wars þríleik verður frumsýnd 24. maí 2019. Ný útgáfa af Konungi ljónanna verður frumsýnd 19. júlí eftir tvö ár og Frosinn 2 kemur í kvikmyndahús í nóvember eftir tvö og hálft ár.