Mættu saman á opinberan viðburð

Meghan Markle og Harry Bretaprins eyða sífellt meiri tíma saman.
Meghan Markle og Harry Bretaprins eyða sífellt meiri tíma saman. skjáskot/The Telegraph

Þrátt fyrir að tilkynnt hafi verið um samband leikkonunnar Meghan Markle og Harry Bretaprins í nóvember síðastliðnum höfðu þau ekki mætt á opinberan viðburð saman fyrr en nú um helgina. 

E! Online greinir frá því að Harry tók þátt í pólóleik um helgina og var Markle mætt á hliðarlínuna til þess að hvetja sinn mann áfram. Ekki náðust almennilegar myndir af þeim saman en einhver náði þó að taka mynd af þeim kyssast á milli bíla.

Fréttir herma að Markle muni mæta í brúðkaup Pippu Middleton, litlu systur Katrínar hertogaynju, seinna í mánuðnum en áður hafa skötuhjúin farið í brúðkaup til vinar Harrys á Jamaíka. 

Harry Bretaprins.
Harry Bretaprins. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant