„Þetta verður mjög góður dagur fyrir Portúgal“

Portúgalanum Salvador Sobral er spáð mjög góðu gengi í kvöld.
Portúgalanum Salvador Sobral er spáð mjög góðu gengi í kvöld. AFP

„Ég held að þetta verði mjög góður dagur fyrir Portúgal,“ segir portúgalski blaðamaðurinn Filipe í samtali við blaðamann mbl.is í Eurovision-blaðamannahöllinni þegar rúmur hálftími er í að úrslit Eurovision hefjist. „Við munum skrifa okkur í sögubækurnar í kvöld,“ segir hann en Portúgal er spáð mjög góðu gengi í keppninni, jafnvel sigri.

Filipe segist vera alveg viss um að hinn portúgalski Salvador Sobral muni standa uppi sem sigurvegari í kvöld. Það yrði þá í fyrsta skipti í 53 ára sögu Portúgals í Eurovision.

„Ég held líka að allir verði ánægðir ef að við vinnum. Lagið er náttúrulega frábært og líka því við höfum aldrei unnið,“ segir Filipe.

Filipe ásamt samstarfskonu en það er mikil stemning í portúgalska …
Filipe ásamt samstarfskonu en það er mikil stemning í portúgalska blaðamannahópnum. mbl.is/Auður

Atriði Ítala ekki nógu gott

Hann telur litlar líkur á því að Ítalir muni blanda sér í toppbaráttuna þrátt fyrir að veðbankar hafi lengi spáð þeim sigri. Reyndar hafa líkurnar farið minnkandi síðustu daga og fleiri veðjað á Sobral.

„Ég held að Ítalir munu ekki komast í topp 3. Sviðsframkoman er ekki nógu grípandi fyrir sjónvarpsáhorfendur en portúgalska atriðið virkar mjög vel í sjónvarpi.“

Filipe segir að ef Portúgal vinni muni keppnin á næsta ári vera haldin í Lissabon. „Hún hefur allt til þess að halda keppnina, hún er stór og miðsvæðis. Hinar borgirnar okkar eru of litlar, Porto gæti mögulega virkað en ég held að Lissabon væri besti kosturinn.“

En myndu Portúgalar halda flotta keppni? „Já engin spurning,“ segir Filipe.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson