Líður best uppi á þaki

Huckleberry er oft uppi á þaki.
Huckleberry er oft uppi á þaki. skjáskot/Instagram

Það eiga allir sinn uppáhaldsstað, þetta gildir einnig um hundinn Huckleberry frá Austin í Texas í Bandaríkjunum. Hans staður er hins vegar óvenjulegur en hann á það til að hoppa upp á þak og njóta útsýnisins. 

Mörgum þykir sérstakt þegar þeir sjá stóran Golden Retriver-hund uppi á þaki og hefur áhyggjufullt fólk verið duglegt að banka upp á hjá eigendum Huckleberry og láta þá vita af þaksetunni. Mirror greinir frá því að eigendurnir hafi séð sig tilneydda til þess að hengja upp miða við útidyrahurðina vegna uppátækis Huckleberry. 

„Ekki vera óttaslegin. Huckleberry stendur undir nafni og lærði að hoppa upp á þak í bakgarðinum. Við skiljum hann aldrei eftir í bakgarðinum án þess að einhver sé heima. Hann mun ekki hoppa af nema einhver lokki hann með mat eða bolta,“ skrifuðu eigendur Huckleberrys. „Við kunnum að meta umhyggjusemi ykkar en gerið það ekki banka upp á. Við vitum að hann er þarna uppi. En endilega takið myndir af honum og deilið með heiminum. #hucktherroofdog.“

Meet Huckleberry, the doggie who loves nothing more than spending time on the rooftop of his human's house 🏡 🐶👀#hucktheroofdog #goldenretriever #dog

A post shared by Feel The Phantasy 🎈📚🎨🌳🐕🐾🚴🏻😍 (@estrellasandra) on May 14, 2017 at 8:46pm PDT



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant