71 árs og dansar enn í netasamfestingi

Cher er orðin 71 en hefur engu gleymt.
Cher er orðin 71 en hefur engu gleymt. mbl.is/AFP

Söngkonan Cher varð 71 árs á laugardaginn en hún lét það ekki stoppa sig í að koma fram og trylla salinn á Billboard-verðlaunahátíðinni sem fram fór í Las Vegas í gær. 

Söngkonan sem tók á móti heiðursverðlaunum tók tvö lög. Annars vegar Believe þar sem hún dansaði um og söng í silfurlituðum hálfgegnsæjum samfestingi og var ekki að sjá á henni að hún væri orðin 71 árs. 

Hitt lagið sem Cher tók var If I Could Turn Back Time og kom hún þar fram í svörtum netasamfestingi svipuðum og þeim sem hún var í árið 1989. 

„Mig hefur langað til þess að gera þetta síðan ég var fimm ára og ég er búin að vera að þessu í 53 ár. Ég varð 71 árs í gær,“ sagði söngkonan í gærkvöldi þegar hún tók á móti verðlaununum samkvæmt Daily Mail. Hún bætti því síðan við að hún gæti haldið planka í fimm mínútur og uppskar mikinn hlátur. 

Cher klæddist þessum svarta samfestingi þegar hún tók lagið If …
Cher klæddist þessum svarta samfestingi þegar hún tók lagið If I Could Turn Back Time en hún kom fram í eins samfestingi árið 1989. mbl.is/AFP
Cher tók á móti heiðursverðlaunum á Billboard-tónlistarverðlaunahátíðinni í gær.
Cher tók á móti heiðursverðlaunum á Billboard-tónlistarverðlaunahátíðinni í gær. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant