Hin rúmenska Viviana Ross kom til Breltands fyrir tveimur mánuðum til þess að láta leikkonudrauminn rætast. Hún var því ekki búin að vera lengi í London þegar hún var rekin úr vinnu sinni hjá Chiltern Firehouse fyrir að sofa hjá Orlando Bloom.
Ross og Bloom náðu saman þegar hún afgreiddi hann á barnum hjá Chiltern Firehouse og eftir vakt fór hún upp á herbergi til hans og eyddi nótt með leikaranum. Því miður fyrir Ross fann yfirmaður hennar hana í herbergi Bloom daginn eftir en þá var leikarinn farinn.
Samkvæmt The Sun er Chiltern Firehouse bar og hótel sem er þekkt afdrep stjarnanna í London. En svo virðist sem það sé bannað að eiga í nánum samskiptum við viðskiptavini og því fór sem fór hjá Ross. Heimildamaður tengdur Ross segir hana þó ekki sjá eftir nóttinni.
Þegar Bloom fékk fregnir af uppsögninni á hann að hafa fengið númer Ross hjá Chiltern Firehouse og hringt í Ross til að biðjast afsökunar.
A post shared by Viviana Ross (@iamvivianaross) on Mar 12, 2017 at 12:04pm PDT