Fríða Ísberg og Pedro Gunnlaugur Garcia fengu í dag nýræktarstyrki Miðstöðvar íslenskra bókmennta. Fríða fyrir Slitförina, safn ljóða, og Pedro Garcia fyrir skáldsöguna Ráðstefna talandi dýra.
Hvor styrkur nemur 400.000 kr. og er veittur til útgáfu á verkum þeirra. Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningarmálaráðherra afhenti styrkina við athöfn í Gunnarshúsi, húsi Rithöfundasambandsins og óskaði við það tækifæri nýjum höfundum alls góðs í ritstörfunum.
Þetta er í tíunda skipti sem Nýræktarstyrkjum er úthlutað, en alls hafa hátt í fimmtíu höfundar hlotið þessa viðurkenningu frá upphafi. Nýræktarstyrkir eru sérstakir styrkir til útgáfu á fyrstu skáldverkum höfunda sem eru að stíga sín fyrstu skref á ritvellinum og til að hvetja þá til frekari dáða á þeirri braut.
Í ár bárust 57 umsóknir um Nýræktarstyrki og er það metumsóknarfjöldi á þeim tíu árum sem styrkirnir hafa verið veittir.