Ragnhildur Gísladóttir, eða Ragga Gísla eins og hún er kölluð, semur þjóðhátíðarlagið í ár. Hún fékk Braga Valdimar Skúlason til þess að semja textann en Retro Stefsson-bræðurnir Logi og Pedro sjá um upptökurnar.
Ragga mætti í þáttinn Magasínið til Huldu Bjarna og Hvata á K100. Hún segist alltaf vera jafnspennt að heyra Þjóðhátíðarlagið ár hvert, eða jafnspennt og fyrir Áramótaskaupinu.