Kim og Kanye fá staðgöngumóður

Kim Kardashian og mann hennar Kanye West langar í annað …
Kim Kardashian og mann hennar Kanye West langar í annað barn. mbl/ATP

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian og eiginmaður hennar, rapparinn Kanye West, hafa skrifað undir tæplega 12 milljóna króna samning við staðgöngumóður fyrir þriðja barn þeirra hjóna samkvæmt TMZ.

Hjónin tóku ákvörðun um að ráða staðgöngumóður eftir að Kardashian greindist með viðgróna fylgju sem gerir það að verkum að fylgjan losnar ekki við fæðingu barns og getur valdið lífshættulegri blæðingu fyrir móður. 

Fyrsta innborgun hjónanna til staðgöngumóðurinnar verður rúmlega sjö milljónir króna ásamt skilyrðum sem fela í sér meðal annars að móðirin reyki ekki, drekki ekki, sé ekki nálægt kattarsandi, fari ekki í gufubað og borði ekki hráan fisk. Einnig má hún ekki stunda kynlíf 3 vikum fyrir eða eftir óléttuna. Restina af peningunum borga hjónin mánaðarlega í tíu mánuði. 

Hjónin eiga nú þegar fjögurra ára dótturina North West og eins árs soninn Saint West.

Snyrtivörulína Kardashian fer í sölu í dag og búist er við hagnaði sem nemur rúmlega milljarði króna á fyrstu mínútunum.     

Kim Kardashian og Kanye West ásamt börnum sínum Saint og …
Kim Kardashian og Kanye West ásamt börnum sínum Saint og North. Twitter/Kanye West
Búist er við milljarði króna í hagnað af snyrtivörulínu Kardashian …
Búist er við milljarði króna í hagnað af snyrtivörulínu Kardashian á fyrstu mínútum opnunarinnar svo 12 milljónir fyrir staðgöngumóður er smápeningur fyrir hana. mbl/instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant