Kidman hefur ljómað síðustu misserin og var hún einstaklega glæsileg í Cannes í maí. Þar sem hún bar af á hverjum viðburðinum á fætur öðrum.
Nicole Kidman varð fimmtug í gær, 20. júní. Hún geislaði þegar hún gæddi sér á bita af risastórri afmælisköku.
Nicole sagði fyrr í mánuðnum við E!News að hún vildi halda upp á afmælið með því að hanga með eiginmanni sínum, börnum og systur sinni. „Ég er nú þegar búin að fara til Ástralíu og hitti mömmu mína en það er of langt fyrir hana að ferðast en systir mín kemur með öll börnin sín. Hún á sex börn,“ sagði ástralska leikkonan og bætti því við að hún væri ekki mikið fyrir stórar veislur.
Kidman hefur ljómað síðustu misserin og var hún einstaklega glæsileg í Cannes í maí. Þar sem hún bar af á hverjum viðburðinum á fætur öðrum.