Hætt í lýtaaðgerðunum

Courteney Cox lét lengi laga á sér andlitið.
Courteney Cox lét lengi laga á sér andlitið. mbl.is/Getty Images

Hin 53 ára Courteney Cox lýsir því í nýlegu viðtali við New Beauty hvernig hún fór í lýtaaðgerðir til þess að verða unglegri. Nú virðist hún hinsvegar vera hætt að láta laga á sér andlitið. 

Cox segist hafa verið að reyna svo mikið að vera ungleg að það hafi bara gert illt verra. Nú sé hinsvegar allt að verða slappt en það var einmitt það sem hún var að forðast. En leikkonan vonast til þess að hún muni verða meira eins og hún sjálf fyrir vikið. „Ég er eins náttúruleg og ég get orðið,“ sagði hún. 

Friends-leikkonan segir það ekki hafa verið auðvelt að eldast í sviðsljósinu. „Hollywood gerir það erfitt, bransinn gerir það erfitt. Ég ólst upp við þá hugsun að útlitið væri mikilvægast,“ sagði Cox. 

Courtney Cox hefur verið lengir í bransanum.
Courtney Cox hefur verið lengir í bransanum. ljósmynd/ABC
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant