Í 100 milljóna króna brúðarkjól

Nýbökuðu hjónin Victoria og Werner.
Nýbökuðu hjónin Victoria og Werner. mbl/Instagram

23 ára erfingi kristalsveldisins Victoria Swarovski gekk að eiga fjárfestinn Werner Mürz í norðausturhluta Ítalíu um helgina. Brúðurin klæddist 46 kílógramma kjól skreyttum 500.000 Swarovski-kristöllum, pallíettum og blómum.

100 milljóna króna kjóllinn var hannaður af sjálfri brúðinni með hjálp hönnuðar frá Dubai að nafni Michael Cinco. Cinco hefur áður hannað flíkur fyrir stórstjörnur eins og Beyoncé, Rihönnu og Lady Gaga.   

Brúðurin gekk að altarinu í hvítum Jimmy Choo-skóm og á eftir henni dróst sex metra slör. 

Eftir athöfnina buðu nýbökuðu hjónin upp á glæsilega fimm laga tertu á meðan stórkostleg flugeldasýning prýddi himininn. 

Ásamt því að vera þekkt fyrir fjölskyldukristallana starfar Swarovski sem söngkona í heimalandi sínu Austurríki en hún skrifaði undir samning við plötufyrirtækið Sony þegar hún var 17 ára gömul. 



Myndarleg hjónin.
Myndarleg hjónin. mbl/Instagram
Skórnir sem brúðurin klæddist.
Skórnir sem brúðurin klæddist. mbl/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson