Skilaboð Beyoncé eftir barnsburð

Beyonce gat ekki tekið á móti verðlaununum sjál vegna þess …
Beyonce gat ekki tekið á móti verðlaununum sjál vegna þess að hún var að eignast tvíbura skjáskot/Beyonce.com

Beyoncé fékk verðlaun fyrir lagið sitt „Sorry“ á BET-verðlaunahátíðinni um helgina en gat ekki mætt vegna þess að hún er nýbúin að fæða tvíbura. Í staðin sendi hún lærlinga sína Chloe X Halle til að taka á móti verðlaununum og færa áhorfendum skilaboð frá henni.

Söngkonurnar byrjuðu á því að tala um hvað Beyoncé væri mikil fyrirmynd og hvað þær væru þakklátar fyrir allt sem hún hefur gert fyrir þær og lásu svo bréf sem söngkonan skrifaði til aðdáendur hennar. 

„Takk BET fyrir þessi verðlaun og stuðninginn sem þið hafið veitt „Lemonade“. Þetta hefur verið ástríkt ferðalag sem að fagnar okkar menningu, heiðrar fortíð okkar og nálgast framtíðina með von. Takk mamma, Tina Knowles Lawson fyrir að vera minn stærsti kennari og áhrifavaldur. Takk öll fjölskylda mín fyrir svona mikla umhyggju og ást. Takk Parkwood teymið mitt. Og takk til alla aðdáenda minna, BeyHive, fyrir að fylgja mér. Ég elska ykkur og met ykkur mikils. Til áhorfendana þið eruð stórglæsileg, takk fyrir og eigið dásamlegt kvöld. Frá Beyoncé“ 

BET verðlaunarhátíðin var stofnuð árið 2001 til að fagna minnihlutahópum í tónlist, leiklist, íþróttum og allskyns listum. 

Beyoncé eignaðist tvíbura miðjan júní.
Beyoncé eignaðist tvíbura miðjan júní. mbl
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson