Gleymdasti meðlimur One Direction

Louis Tomlinson ætlar að gefa út lög þó svo að …
Louis Tomlinson ætlar að gefa út lög þó svo að ekki margir hafi trú á honum. mbl/instagram

Louis Tomlinson opnaði sig í viðtali við The Guardian um það að honum hefði alltaf liðið eins og hann væri auðgleymanlegur í kringum alla hina meðlimi hljómsveitarinnar One Direction. 

Í viðtalinu útskýrði hann að hver meðlimur sveitarinnar hafi haft hlutverk, Harry Styles var þessi svali, Niall var þessi jákvæði, Zayn var þessi með englaröddina, Liam var þessi sem hélt uppi stemmingunni, en Louis var þessi sem enginn man eftir.

Tomlinson greindi frá því að hann hafi verið eini meðlimurinn sem fékk aldrei að syngja einsöng þegar hljómsveitin var að keppa í X-factor söngkeppninni. Það lét honum líða eins og hann hafi ekkert lagt af mörkum og eyðilaggði sjálfstraust hans. 

Hann sagðist hafa liðið best seinasta ár hljómsveitarinnar og reyndi mikið að stoppa það að hljómsveitin hætti saman. 

Tomlinson sagðist hafa ákveðið að gefa út lög undir sínu eigin nafni eins og hinir meðlimir hljómsveitarinnar hafa verið að gera þrátt fyrir það að fáir hafi trú á honum.

New single coming .... @beberexha @digitalfarmanimals #BackToYou

A post shared by Louis Tomlinson (@louist91) on Jun 23, 2017 at 11:27pm PDT



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant