Listinn yfir fólkið sem fær mest borgað fyrir að birta myndir á Instagram hefur verið birtur þar sem sumir fá um 60 milljónir króna fyrir eina mynd samkvæmt DailyMail.
Á listanum eru ýmist frægt fólk eða áhrifavaldar sem hafa komið sér vel á framfæri með fallegum myndum á samfélagsmiðlinum.
Söng- og leikkonan Selena Gomez toppar listann yfir hæstu greiðslur fyrir að birta myndir (60 milljónir króna fyrir mynd) en förðunarfræðingurinn Huda Kattan er efst á lista yfir áhrifavalda (2 milljónir á mynd).
Samkvæmt fólkinu á bak við listann hefur samfélagsmiðillinn knúið þessar stjörnur til auðs utan þeirra villtustu drauma með auglýsingatekjum og samningum við alls kyns fyrirtæki.
Á eftir Selenu Gomez á listanum kemur Kim Kardashian með 50 milljónir króna fyrir mynd. Fótboltamaðurinn Cristiano Ronaldo, Kylie Jenner og Kendall Jenner fylgja fast á eftir með 40 milljónir fyrir hverja mynd.
Aðrir á topp tíu eru Khloe Kardashian, Kourtney Kardashian, Cara Delevigne, Gigi Hadid og Lebron James.
A post shared by Selena Gomez (@selenagomez) on Jun 5, 2017 at 5:35pm PDT
A post shared by Cristiano Ronaldo (@cristiano) on Jun 26, 2017 at 11:09am PDT
My capsule collection with @quayaustralia is coming 7.11.17 #QUAYXKYLIE
A post shared by Kylie (@kyliejenner) on Jun 27, 2017 at 4:14pm PDT