Nokkuð óvenjuleg keppni fór fram á Viva Braslav-hátíðinni í Hvíta-Rússlandi nú á dögunum líkt og meðfylgjandi myndband ber með sér. Þar kepptu 15 pör í svo nefndum eiginkvennaburði, sem fer þannig fram að karlar bera konur sínar á bakinu eftir 500 metra langri hindrunarbraut.
Þó að keppnin sé harla óvenjuleg er hún engu að síður ekki einsdæmi og hafa sambærilegar keppnir m.a. verið haldnar í Finnlandi.