Förðunarfræðingur frá Kansas-ríki Bandaríkjanna vann förðunarkeppni fjármagnaða af Kat Von D áður en hún vissi að vinningshafinn er aðdáandi Donald Trump Bandaríkjaforseta.
Gypsy Freeman birti mynd á Instagram-síðu sinni eftir að hún vann keppnina en glöggir notendur samfélagsmiðilsins uppgötvuðu þá mynd á síðu Freeman þar sem hún lýsir yfir stuðningi við Trump.
Freeman segir að stuttu seinna hafi förðunarfræðingurinn frægi, Kat Von D, sent henni persónuleg skilaboð og sagt henni að hún geti ekki unnið með neinum sem styður Trump.
Í verðlaun átti Freeman að fá flug til Los Angeles til þess að vera viðstödd opnunarhátíð nýju förðunarlínu Kat Von D sem eru verðlaun að virði 200.000 íslenskra króna.
„Fyrirtækið mitt fagnar miklu sem Trump er á móti,“ sagði Kat Von D í skilaboðum sínum til Freeman. „Ég vil að þú vitir að ég á erfitt með að vinna með einhverjum sem styður andstæðing femínisma, samkynhneigða, innflytjenda og umhverfisins eins og Trump er.“
Freeman svaraði Kat Von D og sagðist skilja ástæðurnar fyrir því að hún fengi ekki að koma til Los Angeles á opnunarhátíð hennar.