Ástin spyr ekki um aldur en hin 28 ára gamla Aimee Preston sást aftur skarta stórum demantshring í Hollywood á dögunum samkvæmt Daily Mail. Preston hefur verið með rokkaranum Steven Tyler í fjögur ár.
Talið er að hringurinn sé trúlofunarhringur en Preston sást fyrst með hringinn í desember. Preston gæti þar með orðið þriðja eiginkona Tylers en hann var áður giftur Teresa Barrick og Cyrinda Foxe. Tyler á einnig nokkur löng sambönd að baki sér þar á meðal með fyrirsætunni Bebe Buell en saman eignuðust þau Lord of the Rings-leikkonuna Liv Tyler.
Preston hefur starfað sem aðstoðarkona Tylers en hún á eitt hjónaband að baki.