Nokkrum dögum eftir að söngvarinn Justin Bieber aflýsti fyrirhugaðri tónleikaferð sinni keyrði hann á ljósmyndara á leið úr kirkju. Ljósmyndarinn fór á spítala í kjölfarið.
Hinn 23 ára gamli Bieber var samkvæmt Daily Mail á stórum pallbíl og keyrði á ljósmyndarann þannig að hann meiddi sig í hnénu. Ekki er líklegt um að viljaverk hafi verið að ræða en Bieber ók hægt og allt í kring um bílinn voru ljósmyndarar.
Við áreksturinn datt maðurinn á jörðina en Bieber fór út úr bílnum og hjálpaði manninum og talaði við lögregluna.
Eins og áður segir var Bieber að koma úr messu, en hann er í Hillsong Church söfnuðinum. Kourtney og Khloé Kardasian voru á meðal þeirra sem mættu í þessa sömu messu.