Margir muna eflaust eftir því þegar grínleikarinn Larry David fór með frábæra eftirhermu af Bernie Sanders í Saturday Night Live þegar á forsetakosningum Bandaríkjanna stóð.
Nú hefur ástæðan fyrir þessari hárréttu eftirhermu komið í ljós – Larry David er skyldur Bernie Sanders. CNN greinir frá þessu
Í nýjum raunveruleikaþætti á sjónvarpsstöðinni PBS koma stjörnur í viðtal og læra ættlegg sinn og sögu fjölskyldunnar en Larry David verður næsti gestur þáttarins.
David sagði frá þessari óvæntu uppgötvun á blaðamannafundi en blaðamaður sem hafði fengið að sjá þáttinn áður en hann var frumsýndur hafði spurt leikarann út í fjölskyldutengslin. Hann sagðist hafa verið himinlifandi að frétta að hann væri skyldur Sanders þar sem hann hreint út sagt elski manninn.
Grínleikarinn sagðist ekki geta munað nákvæmlega hvernig þeir voru skyldir en minnti að það væri í þriðja ættlið.
Í fyrra vann David Emmy-verðlaunin fyrir besta gestaleikarann í grínþætti fyrir eftirhermu sína af öldungadeildarþingmanninum.