Bjóða karlaklefa fyrir kaupleiða eiginmenn

Það hafa ekki allir jafn gaman af búðarápi. Í Sjanghæ …
Það hafa ekki allir jafn gaman af búðarápi. Í Sjanghæ er nú búið að setja upp sérstaka karlaklefa fyrir kaupleiða eiginmenn. AFP

Verslunarmiðstöð í Sjanghæ í Kína býður upp á röð svonefndra karlaklefa (e. man pods) sem útbúnir eru tölvuleikjum fyrir kaupleiða eiginmenn og kærasta. Reuters segir klefana hafa slegið samstundis i gegn hjá þeim sem ekki nenna að ramba á milli verslana með betri helmingnum.

Fyrstu karlaklefarnir voru settir upp í Global Harbor-verslunarmiðstöðinni í Sjanghæ í júní á þessu ári og frá því þeir voru teknir í gagnið hafa 1.000 karlar nýtt sér þá að sögn tæknifyrirtækisins Ruwo Smart Technology, sem á heiðurinn af klefunum.

Í karlaklefunum, sem eru litlir glerklefar, er að finna hægindastól, stóran sjónvarpsskjá og tölvuleiki sem notandinn getur spilað í einangrun frá annríkinu fyrir utan.

„Mér finnst þetta vera mjög góð hugmynd, því að í dag eru margir strákar eins og ég ekki viljugir til að fara í búðir með kærustum sínum,“ hefur Reuters eftir Yao Lei, einum notenda klefanna.

Ruwo Smart Technology hyggst setja upp karlaklefa í fleiri verslunarmiðstöðvum í framtíðinni. „Við komumst að því að í flestum verslunarmiðstöðvum koma karlar og konur saman til að versla en karlarnir eru ekki til í að eyða löngum tíma í búðum,“ segir Zhao Wei, sem sér um rekstur klefanna.

„Stundum fara þau jafnvel að rífast. Þannig að í þessum aðstæðum datt okkur í hug að hafa vöru sem gefur karlinum eitthvað að gera á meðan konurnar versla að vild.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson