Bloom og Perry byrjuð aftur saman

Orlando Bloom og Katy Perry eru sögð vera byrjuð aftur …
Orlando Bloom og Katy Perry eru sögð vera byrjuð aftur saman. mynd/samsett

Leikarinn Orlando Bloom og söngkonan Katy Perry hættu saman í mars á þessu ári. Nú virðist sem skötuhjúin séu byrjuð að hittast aftur en það sást til þeirra þar sem þau mættu saman á mótorhjóli á tónleika Ed Sheeran í Los Angeles um síðustu helgi. 

Heimildarmaður E!News staðfesti að parið væri að hittast. „Þau tóku sér pásu það var það besta fyrir þau á þeim tíma. [En þau] eru byrjuð að hittast aftur,“ sagði heimildarmaðurinn. En svo virðist þeim sé sama þó fólk viti af sambandinu en heimildarmaðurinn segir að þau hafi verið meðvituð um að fólk færi að tala eftir að þau fóru út saman. 

Miðað við fyrri sambönd Bloom og Perry kemur ef til vill ekki á óvart að þau hafi ákveðið að byrja hittast aftur. En söngkonan var í sambandi með tónlistarmanninum John Mayer árið 2012 þau hættu síðan saman árið 2013, byrjuðu síðan aftur saman 2014 og hættu saman aftur og byrjuðu síðan aftur að hittast 2015 og hættu auðvitað aftur saman. Það sama má segja um Bloom en hann var sundur og saman með leikkonunni Kate Bosworth á árunum 2002 til 2006. 

Katy Perry.
Katy Perry. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant