Óskar eftir drykkjufélaga

Leikkonan Lawrence óskar eftir drykkjufélaga.
Leikkonan Lawrence óskar eftir drykkjufélaga. AFP

Kvikmyndaleikkonan Jennifer Lawrence býður aðdáendum sínum tækifæri á því að fara með henni í vínsmökkun svo framarlega sem þau gefi peninga til góðgerðamála. 

Lawrence er í slagtogi við fjáröflunarvefsíðuna Omaze þar sem þau styðja Represent.Us sem vinnur að því að berjast gegn spillingu í ríkisstjórn Bandaríkjanna. 

„Það skiptir ekki máli hvort þú sért hægri eða vinstri sinnaður,“ sagði Lawernce í viðtali við Vogue. „Þetta snýst aðeins um það að koma spillingu úr pólitík og að frelsa lýðræðið okkar.“

Herferð leikkonunnar byrjaði í þessari viku og býður hverjum sem að gefur pening til þessa málefnis tækifæri til þess að eyða deginum með Lawrence í vínekrum Kaliforníu.

Vinningshafinn fær flug fyrir tvo Kaliforníu og gistingu á lúxushóteli þar sem deginum verður eytt að drekka vín með Lawrence allan daginn. Ef vinningshafinn er undir lögaldri þá verða óáfengir drykkir í boði. Hægt er að styrkja málefnið og í leið komast í pottinn hér.

Hér má sjá skemmtilegt kynningarmyndband sem leikkonan gerði fyrir þessa herferð:

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson