Stefanía rústar vinsældarkeppninni

Stefanía Tara Þrastardóttir tekur þátt í Ungfrú Ísland þann 26. …
Stefanía Tara Þrastardóttir tekur þátt í Ungfrú Ísland þann 26. ágúst næstkomandi. Skjáskot/Facebook

Fegurðarsamkeppnin Ungfrú Ísland hefur hleypt af stað kosningu fyrir þann keppanda sem hlýtur titilinn vinsælasta stúlkan eða „Miss People's Choice Iceland.“

Kosningin virkar þannig að þú gefur hverri stelpu atkvæði með því að smella á „like“- hnappinn undir hverri mynd.

Það vekur athygli að Stefanía Tara Þrastardóttir er strax komin með mikið forskot í keppninni en tæplega 2 þúsund manns hafa líkað við mynd hennar síðan keppnin fór af stað í gærkvöldi. 

„Þetta kemur rosalega á óvart,“ segir Stefanía í samtali við mbl en bætir því við að henni finnist þetta mjög skemmtilegt. „Það er rosalega mikið af ókunnugu fólki að líka við myndina en ég veit ekkert hvaðan þetta kemur. Ég er ekki með svona stórt bakland,“ bætir hún við og hlær. 

Ef smellt er á myndina hér fyrir neðan er hægt að kjósa þá stúlku sem þér finnst skilið að vinna titilinn.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant