Týndi giftingahringurinn fannst á gulrót

Giftingahringurinn fannst eftir 13 ár á gulrót.
Giftingahringurinn fannst eftir 13 ár á gulrót. Skjáskot/Twitter

Þegar hin kanadíska Mary Grams týndi giftingahring sínum á búgarði árið 2004 bjóst hún aldrei við að hjá hann aftur.

Þangað til í byrjun vikunnar, þegar tengdadóttir hennar, Colleen Daley, reif upp gulrót með giftingahringnum á. 

„Ég vissi að þetta hlyti að vera hringur ömmu eða tengdamömmu, því engin önnur kona hefur búið hér,“ sagði Daley. 

Hún spurði eiginmann sinn hvort hann kannaðist við hringinn og þá mundi hann eftir því að móðir hans hafi týnt hring fyrir rúmlega áratugi.

Grams sagðist hafa verið viss um að hún hefði týnt hrinum í giftingu vinafólks þeirra en hún og maður hennar leituðu hringsins út um allar trissur. 

Hringinn fékk Grams árið 1951, ári áður en hún giftist eiginmanni sínum Norman, sem dó árið 2012. Hún sagði eiginmanni sínum aldrei frá því að hún hefði týnt hringnum því hún var viss um að hann yrði reiður. 

„Ég ætla að nota hann því hann passar enn þá,“ sagði Grams ánægð með hringafundin.

Mary Grams er 84 ára gömul.
Mary Grams er 84 ára gömul. Skjáskot/Twitter
Eftir að Grams týndi giftingarhring sínum keypti hún þennan, miklu …
Eftir að Grams týndi giftingarhring sínum keypti hún þennan, miklu minni, í staðinn og sagði ekki eiginmanninum frá týnda upprunalega hringnum. Skjáskot/twitter
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson