Rooney-hjónin eiga von á fjórða barninu

Fótboltakappinn Wayne Rooney og eiginkona hans Coleen.
Fótboltakappinn Wayne Rooney og eiginkona hans Coleen. Skjáskot/Instagram/Coleen Roney

Fótboltamaðurinn snjalli Wayne Rooney og eiginkona hans Coleen hafa nú sagt frá því opinberlega að þau eigi von á sínu fjórða barni. Coleen, sem er þekktur dálkahöfundur, deildi góðu fréttunum í færslu á Twitter.

„Svo hamingjusöm!“ skrifaði hún. „Ég hef aldrei neitað þessum fréttum en ég var samt alltaf í vörn. Nú er ég búin að fara í allar skoðanir og allt er í fínasta lagi. Barn númer fjögur er á leiðinni.“

Parið gifti sig árið 2008. Þau hafa verið saman frá því að þau voru unglingar. Þau eiga saman þrjá syni: Kai, átta ára, Klay, fjögurra ára og Kit sem fæddist í janúar fyrir rúmu ári. Það eru því töluverðar líkur á því að fjórða barnið fái einnig nafn sem byrjar á bókstafnum K.

Coleen segist alveg vera til í að eignast stúlku í þetta sinn. „Ég er ekkert örvæntingarfull að eignast stelpu en það væri gaman að fá eina slíka sem viðbót við fjölskylduna okkar.“

Frétt Sky um málið.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson