Opnar sig loksins um lyfturifrildið

Jay-Z er eiginmaður Beyoncé.
Jay-Z er eiginmaður Beyoncé. AFP

Rapparinn Jay-Z hefur loksins tjáð sig um lyfturifrildið fræga við Solange Knowles, systur Beyoncé. Huffington Post greinir frá þessu.

Myndband sem var birt eftir atvikið sýnir Knowles slá og lemja Jay-Z í lyftu á meðan Beyoncé horfir á og gerir ekkert. Enginn meðlimur fjölskyldunnar hefur nokkru sinni tjáð sig um atburðinn sem varð árið 2014. 

Í viðtali við RapRadar sagði hann frá sambandi sínu við mágkonu sína og sagðist líta á hana sem systur.

Hann minntist ekki á hvað hefði komið rifrildinu af stað en hann fullvissaði aðdáendur sína um að samband þeirra væri nú gott og blessað. 

„Við höfum aldrei rifist nema þetta eina skipti. Aldrei. Bæði fyrir og eftir rifrildið vorum við í góðu. Hún er eins og systir mín, ég mun alltaf vernda hana. Hún er systir mín, ekki mágkona mín,“ sagði hann.

Í myndbandinu horfir Beyoncé á systur sína lemja eiginmann sinn …
Í myndbandinu horfir Beyoncé á systur sína lemja eiginmann sinn en gerir ekkert. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant