Leikkonan og grínkonan Saga Garðarsdóttir varð þrítug fyrr í ágúst. Hún fagnaði stórafmælinu á frumlegan hátt en hún og vinir hennar lögðu undir sig Sundhöll Hafnarfjarðar.
Saga naut veðurblíðunnar í sundhöllinni með fjölmörgum vinum sínum um síðustu helgi þar sem fólk lék sér í sundi og borðaði rjómatertu.
Fólk hefur sjaldan verið jafnfáklætt í þrítugsafmælisveislu á Íslandi enda velflestir í sundskýlum og sundbolum. Sjálf var Saga í fallegum brauðtertusundbol.
Afmælis-ungbarnasund í skemmtilegustu þrítugsveislu í heimi. Til hamingju með ammli elsku Saga 💛🐥
A post shared by Guðrún Sóley (@gudrun_soley) on Aug 20, 2017 at 11:48am PDT