Harry Bretaprins er sagður fara sjálfur út á flugvöll að sækja kærustu sína, Meghan Markle. Parið hefur verið í fjarsambandi þar sem leikkonan dvelur jafnan í Toronto við tökur á lögfræðidramanu Suits.
Undir venjulegum kringumstæðum þætti það ekki fréttnæmt að kærasti pikkaði kærustu sína upp af flugvellinum. Hins vegar er Harry prins og því ekki sjálfsagt að hann fari hvert sem hann vill. Samkvæmt heimildum Daily Mail fær Markle að fara beint úr flugvélinni til Harrys og sleppur þar með við hefðbundið vegabréfaeftirlit og ljósmyndara.
Harry er þó í lögreglufylgd og með lífvörð þegar hann keyrir svarta Audi-inn sinn. Markle er síðan oftast bara með handfarangur og því auðvelt fyrir hana að koma sér úr flugvélinni. Ef hún ferðast með meiri farangur er sá farangur settur síðast inn í vélina þannig að auðvelt er að finna hann þegar hún fer út úr vélinni.
Markle sleppur þó ekki við öryggiseftirlit en því er hins vegar framfylgt áður eða um borð í vélinni svo hún geti einfaldlega farið beint úr flugvélinni upp í bíl til Harrys.