Wahlberg launahæsti leikari heims

Leikarinn Mark Wahlberg.
Leikarinn Mark Wahlberg. AFP

Mark Wahlberg er launahæsti leikari heims, samkvæmt nýjum lista tímaritsins Forbes. Hann þénaði 68 milljónir dala fyrir skatt síðustu tólf mánuði, eða rúma sjö milljarða króna.

Wahlberg, sem er 46 ára, fékk upphæðina fyrir leik sinn í myndunum Transformers: The Last Knight og Daddy´s Home 2, sem er væntanleg í bíó í nóvember.

Dwayne Johnson, sem var í efsta sæti í fyrra, varð annar á listanum með 65 milljónir dala fyrir leik sinn í Baywatch og Ballers.

Óskarsverðlaunahafinn Emma Stone, sem er 28 ára, varð efst á lista yfir launahæstu konurnar í heiminum sem var birtur í síðustu viku með 26 milljónir dala, eða hátt í þrjá milljarða króna.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson