Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir, verkefnastjóri hjá Listaháskóla Íslands, spurði Twitter hvað ætti að koma í litríku sjoppuna á Langholtsveginum. Hún beindi síðan spurningunni að Gísla Marteini Baldurssyni fjölmiðlamanni og eins eiganda Kaffi Vest enda Gísli Marteinn þekktur fyrir mikinn áhuga á borgarskipulagi.
Því miður fyrir fólk í 104 Reykjavík virðist sem Gísli Marteinn verði ekki þeirra bjargvættur. „Mun aldrei opna neinn bisness sem ekki er í götunni minni og gerir nærumhverfið gott,“ skrifar Gísli Marteinn til Ólafar og segist ekki vera „bisnesskall“. Það er því ljóst að Langholtsvegurinn er ekki nærumhverfi Gísla Marteins enda þykir Breiðhyltingnum fátt betra en Vesturbærinn.
Vitum við hvað kemur til með að verða hér? Næsta Bike Cave? Mini Laundromat? Kaffi Vest? @gislimarteinn ertu með e-ð á prjónunum? #hverfið pic.twitter.com/mBCTQgk7HC
— Ólöf Hugrún (@olofhugrun) August 22, 2017