Matreiðslumaðurinn Jamie Oliver segir að það sé eins og Gordon Ramsey sé heilabilaður og hann gleymi því sem hann segi. Gordon Ramsey kallaði Oliver feitan og sagði veitingastaði hans lélega fyrr á árinu.
„Þetta truflar mig ekki lengur en þetta var áfall, hann hefur ekki sent mér afsökun, ég veit ekki hvort hann hefur slíkar tilfinningar,“ sagði Oilver í samtali við The Sun.
Oliver skilur ekki af hverju Ramsey gerði grín að honum á þennan hátt. „Ég held ekki að hann geti verið öfundsjúkur út í mig af því að engum breskum kokki hefur gengið jafn-vel í bandarísku sjónvarpi og Gordon eða hefur neglt það í sjónvarpi,“ sagði Oliver. „Hann er með þetta, en við erum öðruvísi.“