Slökkviliðsmaðurinn Xavier Gorumelon annaðist Díönu prinsessu á slysstað þegar hún lést. Í fyrstu sá hann bara ljóshærða manneskju og áttaði sig ekki á þarna var Díana prinsessa.
„Guð minn góður hvað gerðist,“ sagði Díana eftir að hún náði meðvitund, þessu greindi Gourmelon frá í þættinum Good Morning Britain samkvæmt Hello. Gourmelon reyndi að róa hana niður með því að segja henni að hann myndi sjá um hana en hann segir að prinsessan hafi verið í uppnámi. Díana missti síðan meðvitund aftur.
Gourmelon segir að um venjulega aðgerð hafi verið að ræða fyrir þá sem slökkviliðsmenn. Hins vegar hafi þetta verið óvenjulegt vegna manneskjunnar sem lenti í slysinu.