Hertoginn af Dölunum fær nafn

Karl Filippus Svíaprins og Sofia prinsessa á leið heim af …
Karl Filippus Svíaprins og Sofia prinsessa á leið heim af spítalanum með son sinn, Gabríel Karl Walther. Ljósmynd/Kungahuset.se (Af Facebook)

Sonur Karls Filippusar Svíaprins og Sofiu prinsessu, sem kom í heiminn þann 31. ágúst síðastliðinn, er kominn með nafn. Prinsinn heitir Gabríel Karl Walther og hlýtur hann titilinn hertogi af Dölunum. Karl Gústaf Svíakonungur er himinlifandi með nafna sinn, eins og fram kemur í tilkynningu frá sænsku krúnunni.

Gabríel er annað barn Karls Filippusar og Sofiu. Fyrir eiga þau soninn Alexander sem fagnaði eins árs afmæli sínu í apríl.

Barnaláni sænska kóngafólksins er þó hvergi nærri lokið þar sem Magdalena, systir Karls Filippusar, á von á sínu þriðja barni. Sá prins eða prinsessa verður sjöunda barnabarn Karls Gústafs og Sylvíu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson