Björk og Gucci sameina krafta sína

Kjóllinn sem Björk klæðist í myndbandi „The Gate“ var hannaður …
Kjóllinn sem Björk klæðist í myndbandi „The Gate“ var hannaður af Alessandro Michele, yfirhönnuði hjá Gucci. Skjáskot/Youtube

Björk hefur gefið út nýtt myndband við lagið „The Gate,“ sem er fyrsta smáskífan af væntanlegri plötu hennar sem kemur út í nóvember.

Myndbandinu er leikstýrt af Andrew Thomas Huang, samstarfsmanni Bjarkar til margra ára. Listræn stjórnun er í höndum Bjarkar, James Merry og Alessandro Michele, yfirhönnuður Gucci. Björk klæðist sérsaumuðum kjól frá Gucci í myndabandinu, en alls fóru 870 klukkustundir í að búa til kjólinn.

Ekki hef­ur verið til­kynnt um heiti nýju plöt­unn­ar, en Björk telur líklegast að „Utopia“ verði fyrir valinu. Einnig hefur hún sagt að platan sé „Tinder-platan“ hennar. Síðasta plata Bjarkar, Vulnicura, fjallaði um skilnað Bjarkar við eiginmann sinn, Matthew Barney. Í viðtali við Dazed segir Björk að hún sé enn viðkvæm fyrir ástinni, en að næsta plata muni veita innsýn í stefnumótalíf hennar.

„The Gate“ mun því gefa tón­inn um það sem koma skal. Tón­list­armaður­inn Arca er meðfram­leiðandi plöt­unn­ar, en hann vann einnig með Björk við gerð Vulnicura.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson