Gleymdi ættleiddu börnunum

Nicole Kidman minntist ekki á eldri börn sín í þakkarræðu …
Nicole Kidman minntist ekki á eldri börn sín í þakkarræðu sinni. mbl.is/AFP

Leikkonan Nicole Kidman tileinkaði eiginmanni sínum Keith Urban og dætrum sínum þeim Sunday Rose og Faith Margaret Emmy-verðlaunin sem hún vann fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttaröðinni Big Little Lies. 

Það vekur athygli að Kidman minntist ekki á hin tvö börn sín þau Connor og Isabellu Cruise sem hún ætleiddi með fyrrverandi eiginmanni sínum leikaranum Tom Cruise. 

„Ég er líka móðir og eiginkona, ég á tvær litlar dætur Sunny og Faith og minn yndislega Keith,“ sagði Kidman í ræðu sinni. Hún talaði um að hún hafði ekki getað verið til staðar þegar hún var að leika í þáttunum og mun það kannski vera ástæðan fyrir því að hún talaði bara um yngri börnin sín en börnin sem hún á með Tom Cruise eru komin yfir tvítugt. 

Samband Nicole Kidman við þau Connor og Isabellu Cruise hefur verið stöpult en systkinin er sögð hafa útilokað móður sína eftir skilnað hennar og Tom Cruise. Er því haldið fram að vísindakirkjan komi þar við sögu en leikarinn er meðlimur kirkjunnar. 

Nicole Kidman var gift Tom Cruise áður en hún kynntist …
Nicole Kidman var gift Tom Cruise áður en hún kynntist Keith Urban. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson