Hljómsveitin Sigur Rós hefur tilkynnt fyrstu listamennina sem koma munu fram á listahátíðinni Norður og niður sem fram fer í Hörpu dagana 27. til 30. desember. Þeir erlendu listamenn sem staðfest hafa komu sína á hátíðina eru Jarvis Cocker, Kevin Shields, Stars of the Lid, Dan Deacon og Julianna Barwick. Að auki munu koma fram upprennandi íslenskir listamenn, en þar á meðal má nefna hljómsveitina Hugar, JFDR, Sing Fang og Sóley og Örvar Smárason.
Í tilkynningunni er einnig kveðja frá meðlimum Sigur Rósar sem hljómar svona:
„Við erum ótrúlega spenntir fyrir Norður og niður. Að skipuleggja sína eigin hátíð er frábært, maður setur saman draumaliðið sitt með öllum uppáhaldsleikmönnunum sínum og hefur samband við þá, krossar fingur, og með smá lukku og heppilegri tímasetningu myndast ósigrandi teymi af afburðagóðu hæfileikafólki, á einn stað á einni stundu, til að töfra fram eitthvað ótrúlegt.
- Meðlimir Sigur Rósar“
Miðasala á Norður og niður hefst hinn 28. september.