Páll Óskar Hjálmtýsson hélt tvenna risatónleika í Höllinni á laugardag. Mikil stemning var á meðal áhorfenda sem fengu að sjá magnaðan flutning Palla á öllum bestu lögum ferilsins. Með honum á sviðinu var sex manna hljómsveit auk dansara.
Tónleikarnir voru allir hinir glæsilegustu, sviðið var sérsmíðað og öllu tjaldað til í búningum, ljósum og hljóði. Ljósmyndari Morgunblaðsins myndaði fyrri tónleika dagsins.