Grey's Anatomy-stjarnan Kate Walsh greindi frá því í viðtali við Cosmopolitan að hún hefði farið í aðgerð vegna heilaæxlis árið 2015.
Walsh var á þessum tíma að leika í sjónvarpsþáttunum Bad Judge og vann allt of mikið eða um 80 klukkutíma á viku og æfði auk þess stíft. Hún ákvað að gera léttari æfingar en eftir nokkrar vikur leið henni ekki betur.
Pilates-kennarinn hennar sá eitthvað athugavert við hægri hlið hennar. Þegar hún var að keyra fann hún að hún hallaði í átt að hægri hliðinni. Hún átti einnig erfitt með að klára setningar.
Í júní 2015 var hún síðan greind með heilaæxli á stærð við sítrónu. Læknana grunaði að æxlið væri góðkynja en gátu þó ekki fullvissað sig um það fyrr en hún fór í aðgerð.
Walsh tók sér frí í níu mánuði eftir aðgerðina til þess að jafna sig. „Ég elska að vinna mikið og gera 800 hluti í einu,“ segir Walsh sem tók sér samt góðan tíma í að koma sér aftur af stað.