Kvikmyndin Undir trénu í leikstjórn Hafsteins Gunnars Sigurðssonar verður framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2018.
Félagsmenn í Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni (ÍKSA) kusu í rafrænni kosningu sem lauk á miðnætti í gær, 20. september. Kosið var á milli fjögurra íslenska kvikmynda sem uppfylltu skilyrði bandarísku akademíunnar til keppni um erlenda Óskarinn, að því er ÍKSA segir í tilkynningu.
Umræddar kvikmyndir voru:
Félagar í Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni eru tæplega 500 talsins. Þetta er í 38. sinn sem Ísland sendir framlag til Óskarsverðlaunanna, en íslenskar myndir hafa tvisvar verið tilnefndar í úrslit; kvikmyndin Börn náttúrunnar eftir Friðrik Þór Friðriksson árið 1991 og stuttmyndin Síðasti bærinn eftir Rúnar Rúnarsson árið 2006.
Undir trénu er framleidd af Grímari Jónssyni, Sindra Páli Kjartanssyni og Þóri Snæ Sigurjónssyni fyrir framleiðslufyrirtækið Netop Films. Handritið er eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson og Huldar Breiðfjörð.