Rifbeinin burt til að líta betur út í jakka

Rodrigo Alves er búin að fara í fjölmargar lýtaaðgerðir.
Rodrigo Alves er búin að fara í fjölmargar lýtaaðgerðir. skjáskot/Instagram

Lýtalækningafíkillinn Rodrigo Alves ætlar að láta fjarlægja sex rifbein til þess að líta betur út í jakkafatajakka. Alves hefur farið í fjölda lýtaaðgerða til þess að reyna líkjast Barbie-kallinum Ken. 

The Sun greinir frá því að Alves sé á leið til Los Angeles í næsta mánuði þar sem hann ætlar í hárígræðslu en í leiðinni ætlar hann að hitta lækna vegna rifbeinanna. „Ég á vini sem hafa gert þetta, þetta er ekki einföld aðgerð en það er hægt að gera þetta,“ sagði Alves. 

Hann segir að ef þrjú rifbein af hvorri hlið verði tekin verði hann með klassískt sköpulag. Þetta muni gera mittið mjórra svo hann geti gengið í fínum jakkafatajökkum.

Alves upplýsti þetta fyrir skömmu eftir að hann tilkynnti að hann vildi fara í kynleiðréttingu til þess að verða eins og Barbie-dúkka.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler