Grease-stjarnan Olivia Newton-John notaði gras til þess að hjálpa sér í gegnum veikindi sín en Newton-John greindist fyrr á árinu aftur með brjóstakrabbamein. Frá þessu greindi hún í þættinum Today og segir grasið hafa læknandi áhrif sem hjálpi til við verki og bólgur.
Hún segir að það þurfi að fara að endurskoða hvernig litið er á gras. „Fólk er með þá hugmynd síðan á sjöunda áratugnum að fólk sitji bara og verði skakkt,“ sagði hún
Newton-John gerir ráð fyrir að þurfa að glíma við krabbamein svo lengi sem hún lifir. „Ég held að þú getir lifað með krabbamein eins og þú getur lifað með öðrum hlutum ef þú bara hugsar um sjálfan þig,“ sagði hún í viðtalinu.