Ralph Fiennes orðinn Serbi

Ralph Fiennes.
Ralph Fiennes. AFP

Breski leikarinn og leikstjórinn Ralph Fiennes, sem meðal annars lék Voldeemort í Harry Potter myndunum, fékk í dag afhent serbneskt vegabréf. Um er að ræða heiðursríkisborgararétt fyrir að koma landinu á framfæri við umheiminn.

„Ég átti nú aldrei von á því að ég yrði Serbi en svo virðist sem það sé raunin,“ sagði Fiennes í Belgrad í dag þar sem hann tók við viðurkenningunni. Það var ríkisstjórn Serbíu sem ákvað þetta fyrr í mánuðinum og var það forseti landsins, Aleksandar Vucic, sem afhenti honum persónuskilríki og vegabréf í dag. 

Fiennes, sem er 54 ára gamall og hefur leikið í fjöldamörgum kvikmyndum. Hann var tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir túlkun sína á Amon Göth í Schindler's list árið 1993 og hlaut bæði Golden Globe verðlaunin og BAFTA verðlaunin fyrir leik sinn í myndinni.

Hann var jafnframt tilnefndur fyrir hlutverk Count Almásy í myndinni The English Patient árið 1996 til Óskars-, BAFTA og Golden Globe verðlauna.

Fiennes er við tökur í Belgrad á kvikmynd um ballettdansarann Rudolph Nureyev. Árið 2010 tók hann upp sína fyrstu kvikmynd í hlutverki leikstjóra í Serbíu. Myndin Coriolanus sem byggir á leikriti Shakespeare.

Ralph Fiennes tók við persónuskilríkjunum og vegabréfinu úr hendi forseta …
Ralph Fiennes tók við persónuskilríkjunum og vegabréfinu úr hendi forseta Serbíu, Aleksandar Vucic, í dag. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson