Nýverið var heimildamyndin Gaga: Five Foot Two sem fjallar um söngkonuna Lady Gaga frumsýnd á Netflix. Þar fjallar tónlistarkonan meðal annars á opinskáan hátt um baráttu sína við vefjagigt, en sjúkdómnum fylgja miklir og langvarandi verkir frá stoðkerfi líkamans.
„Ég held að ég geti orðið barnshafandi, en ég veit það þó ekki fyrir víst,“ játar Gaga, sem heitir réttu nafni Stefani Germanotta, í myndinni.
„Hvað munu mjaðmirnar mínar gera, ég veit það andskotann ekki,“ bætir söngkonan við, en hún hefur barist við verki undanfarin ár.
Söngkonan fjallar einnig opinskátt um ástarlíf sitt, en hún segir að sambönd sín líði oft undir lok þegar hún hefur afrekað ótrúlega hluti í starfi sínu.
„Ég get ekki annað en áttað mig á því að þegar ég seldi 10 milljón plötur missti ég Matt. Þegar ég svo seldi 30 milljón plötur missti ég Luc. Þegar ég gerði kvikmyndina missti ég Taylor. Það er í þriðja skipti sem ég upplifi álíka hjartasár.“