Cristiano Ronaldo er ríkur maður, bæði af fé og börnum. Hinn 32 ára gamli fótboltakappi á þrjú börn en í sumar staðfesti hann svo orðróm þess efnis að hann og kærasta hans, Georgina Rodriguez, eigi von á barni.
Ef marka má frétt Daily Mail verður nýjasti fjölskyldumeðlimurinn stúlka, en danskennari Rodriguez greindi óvart frá tíðindunum.
Forsaga málsins er sú að Rodriguez birti myndband á Instagram-síðu sinni, en hún leggur stund á salsadans. Í færslunni hrósaði hún kennara sínum í hástert, en samkvæmt frétt Daily Mail svaraði hann færslunni.
Í ummælunum, sem nú hefur verið eytt, stóð: „Það var sannkölluð ánægja að taka þig í danstíma. Við erum ánægð með hvernig þú stóðst þig í fyrsta tímanum. Litla stúlkan sem þú berð undir belti á eftir að verða frábær dansari.“
Skötuhjúin Ronaldo og Rodriguez hafa þó ekki staðfest að þau eigi von á stúlku.
Frétt mbl.is: Væri ánægður með sjö börn
A post shared by Georgina Rodríguez (@georginagio) on Sep 22, 2017 at 5:51am PDT