Talsmenn staðfestu þungunina

Kylie Jenner á von á sínu fyrsta barni.
Kylie Jenner á von á sínu fyrsta barni. AFP

Talsmenn raunveruleikastjörnunnar Caitlyn Jenner hafa staðfest að ungstirnið Kylie Jenner, dóttir Caitlyn, eigi von á sínu fyrsta barni.

Fregnir af þunguninni bárust fyrir helgi, en stjarnan unga hefur þó sjálf ekki tjáð sig um ástand sitt opinberlega.

Sögusagnir voru uppi um að Caitlyn hefði frétt af ófæddu barnabarninu í gegnum fjölmiðla, en eins og sjá má á frétt Mirror hafa talsmenn hennar greint frá því að það á ekki við rök að styðjast.

„Það eina sem ég get sagt er að það var fyrir nokkru,“ sagði talsmaður Jenner og átti þá við að stjarnan hefði fengið fregnir af þunguninni áður en málið komst í fjölmiðla.

Þá heldur vefmiðillinn TMZ því fram að Jenner beri stúlkubarn undir belti og sé komin fimm mánuði á leið.

Frétt mbl.is: Berar ekki bumbuna

Jenner klæddist víðum bol þegar hún skellti sér á tónleika …
Jenner klæddist víðum bol þegar hún skellti sér á tónleika um helgina. Skjáskot / Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson