Nappaði poppi af prinsinum

Popp er gott. Sér í lagi konunglegt popp.
Popp er gott. Sér í lagi konunglegt popp. Skjáskot Youtube

Fæstir myndu láta sér detta í huga að vaða með lúkurnar ofan í popppoka Harrys Bretaprins. Ung stúlka, sem sat við hlið prinsins á Invictus-leikunum, lét sér þó fátt um finnast og nældi sér í svolítið poppkorn til að maula.

Prinsinn, sem var í hrókasamræðum við sessunaut sinn, var fremur lengi að kveikja á perunni og gat litla stúlkan svo til borðað fylli sína áður en Harry áttaði sig á því að hann sæti við hlið bíræfins poppþjófs.

Myndband af atvikinu hefur vakið mikla eftirtekt í netheimum, og eru flestir sammála um að litla stúlkan sé mikil hvunndagshetja.



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson