Hrukkótt og talar ekki um lýtaaðgerðirnar

Jane Fonda vekur jafnan athygli fyrir unglegt útlit.
Jane Fonda vekur jafnan athygli fyrir unglegt útlit. mbl.is/AFP

Mynd af Jane Fonda birtist á forsíðu tímaritsins Town & Country þar sem ekki hafði verið átt við húð leikkonunnar. Svo virðist sem Fonda sé mögulega eitthvað að sætta sig við aldurinn en um daginn neitaði hún að tala um lýtaaðgerðir sem hún hefur gengist undir. 

Fonda sem verður áttræð á árinu og vekur jafnan athygli fyrir flott form og unglegt útlit hefur opnað sig um lýtaaðgerðir sínar. „Ég vildi óska þess að ég hefði verið nógu hugrökk til þess að fara ekki í lýtaaðgerðir en ég held að ég hafi keypt mér áratug,“ sagði Fonda í viðtali við The Guardian árið 2015. 

People greinir frá því að Fonda hafi verið fúl á móti þegar hún var spurð í sjónvarpsviðtali í lok september af hverju hún væri ekki stolt af því að hafa látið laga á sér andlitið. „Þurfum við í alvöru að tala um það akkúrat núna,“ sagði Fonda og reyndi að þakka góðu viðhorfi, góðri líkamsstöðu og því að hugsa vel um sig fyrir gott útlitið. 

Jane Fonda lét ekki fela hrukkurnar á forsíðu tímartitsins Town&Country.
Jane Fonda lét ekki fela hrukkurnar á forsíðu tímartitsins Town&Country.
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson