Reyndi að fremja sjálfsmorð

Mark Salling reyndi að fremja sjálfsmorð.
Mark Salling reyndi að fremja sjálfsmorð.

Glee-leikarinn Mark Salling er sagður hafa reynt að fremja sjálfsmorð þann 22. ágúst með því að skera sig á púls á báðum höndum. Atvikið á að hafa átt sér stað einum og hálfum mánuði áður en hann gerði samning við saksóknara vegna ákæru sem snérist um vörslu á barnaklámi. 

Samkvæmt TMZ missti Salling sig og öskraði á sambýling sinn sem hringdi síðan á neyðarlínuna þar sem hann sá Salling blæða. Salling var fluttur með sjúkrabíl á spítala þar sem hann gekkst undir geðmat. Í kjölfari var hann fluttur í meðferð fyrir fólk með sálfræðileg vandamál. 

Lögfræðingar Salling neita sögunni en vilja þó ekki gefa upp hvað sé rangt við hana. Þeir segja Salling vera í fínu lagi líkamlega og sé að vinna í sjálfum sér. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson