Erfinginn væntanlegur í apríl

Katrín tók þátt í góðgerðarsamkomu á Paddington lestarstöðinni í London …
Katrín tók þátt í góðgerðarsamkomu á Paddington lestarstöðinni í London í gær. AFP

Vilhjálmur prins og Katrín hertogaynja hafa tilkynnt að von er á barni þeirra í heiminn í apríl. 

Í byrj­un sept­em­ber var til­kynnt um að þau Katrín og Vil­hjálm­ur ættu von á sínu þriðja barni. Til­kynn­ing­in kom mun fyrr en áætlað var vegna veik­inda her­togaynj­unn­ar sem hefur þurft að glíma við mikla morgunógleði líkt og á fyrri meðgöngum sínum tveimur.

Í stuttri tilkynningu frá Kensington-höll kemur fram að hjónakornin geti með mikilli ánægju sagt frá því að von sé á barninu í heiminn í apríl. Katrín er því gengin rúma þrjá mánuði á leið. Ekki fylgir sögunni um hvort kynið er að ræða eða hvort að hjónin viti kynið yfirhöfuð. 

Katrín hefur haldið sig til hlés á meðgöngunni hingað til, en í gær tók hún þátt í góðgerðarsamkomu á Paddington lestarstöðinni í London. Létt var yfir henni og hún meðal annars dansspor með bangsanum góða.

Vilhjálmur Bretaprins og Katrín hertogaynja mættu saman á opinberan viðburð …
Vilhjálmur Bretaprins og Katrín hertogaynja mættu saman á opinberan viðburð í vikunni í fyrsta sinn frá því að tilkynnt var um óléttuna í september. Kúlan lætur lítið fyrir sér fara enn sem komið er. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant